Járnbakki á breiðum fæti 25cm
Handgerður járnbakki á fæti - stílhrein og endingargóð hönnun
Fallegur bakki sem sameinar einfalt útlit og sterka smíði. Bakkin er 25cm í þvermál og 10cm á hæð, sem gerir hann tilvalinn undir skrautmuni, kerti eða sem hagnýtan framreiðslubakka.
Hann er framleiddur úr járni og húðaður með slitsterkri pólýhúð sem ver yfirborðið og tryggir langa endingu. Hækkaður fótur gerir hann að fallegum miðjupunkti á borði, hillu eða eldhúsbekk.
Helstu eiginleikar:
- Handgerð hönnunn
- Efni: Járn með pólýhúð
- Þvermál: 25cm
- Hæð: 10cm
- Sterkur og endingargóður
- Hentar fyrir skraut, kerti eða framreiðslu
(Athugið að þetta eru handgerðar vörur og stærðir geta því verið örlítið breytilegar)
