Skál á fæti - bleik
Steypt skál á fæti
Falleg, handgerð skál á fæti, bleik með mjúkri steináferð. Einföld og tímalaus hönnun þar sem fóturinn gefur skálinni létt og fágað útlit.
Skálin hentar vel undir smáhluti, kertasand og skartgripi eða sem skrautmunur á borði eða í hillu, þar sem hún bætir við hlýju og stílhreinu yfirbragði.
Helstu eiginleikar:
- Handgerð vara
- Efni: Steypa með spreyáferð
- Hæð: 5,5 cm
- Þvermál: 12 cm
Umhirða: Strjúkið af skálinni með rökum klút. Ekki setja hana beint undir vatn.
Athugið: Þar sem um handgerðar vörur er að ræða geta stærðir og útlit verið örlítið breytilegt.
